þriðjudagur, mars 28, 2006

Englar

Það var voða gott að koma heim í gær og knúsa litla strákinn minn eftir að hafa verið á Hólmavík í einn sólarhring. Brynjar er yfirleitt duglegur að fara að sofa og í gærkvöldi burstuðum við tennurnar og háttuðum og ég leyfði honum að hlusta á Línu Langsokk upp í rúmi. Eftir að hafa knúsað hann og kysst góða nótt bað ég guð og englana að passa strákinn minn í nótt. Stuttu síðar segir ungi maðurinn við pabba sinn; er nokkuð hurðin læst? Þessi elska hafði miklar áhyggjur af því hvort að englarnir kæmust ekki inn um læsta útidyrahurðina....

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Æi hvað þetta er hjartanlegt:)

16 apríl, 2006 14:39  

Skrifa ummæli

<< Home