föstudagur, mars 24, 2006

Ítalía með stelpunum

Þá er æfingakennslunni formlega lokið. Við afhentum nemendum okkar bækur með verkefnum sínum og héldum smá kveðjustund með skúffuköku og svala. Viðtökukennaranum færðum við leikhúsmiða fyrir tvo og körfu fulla af góðgæti. Ég fékk í hendurnar eitt stykki mat og umsögn sem ég er meira en lítið sátt við!

Ég var að koma frá tannlækni (hef ekki farið í 3 ár) og hann fann tvær skemmdir (fyrstu skemmdirnar mínar) og tilkynnti mér að hann þyrfti að taka 4 endajaxla! Ég fer sem sagt í næstu viku og þar næstu viku og í allt kostar þetta rúmlega 70.000 kr - það kalla ég brjálæði fyrir utan tilhugsunina um stóra töng og sprautur þann 7. apríl þegar ég legg í endajaxlatökuna miklu :O

Í kvöld fer ég aftur á móti ásamt Köben-gellunum á veitingahúsið Ítalíu og hlakka mikið til að fá næði til að spjalla, borða góðan mat og drekka smá vínsopa :o)

5 Comments:

Blogger Little miss mohawk said...

Þú skrifar alltaf svo BRJÁL kjút comment á mína síðu að ég ætla að segja þér í eitt skipti fyrir öll að mér finnst þú YNDISLEGA FRÁBÆR týpa og brjálæðislega góð manneskja !!! KNÚS og nei er ekki að reyna að snapa mér sunnudagsmat hehehehheh

24 mars, 2006 20:19  
Anonymous Nafnlaus said...

Það var æðisgengið á Ítalíu, .. hmmm fyrir utan gráðostinn.. hehehe það var samt svo fyndið :o)

Gerum þetta aftur fljótlega thihíhí..

knus og kram

Ingsa

26 mars, 2006 15:07  
Anonymous Nafnlaus said...

Rosalega kostar þetta mikið! Ég fór í fyrra að gera það sama og það kostar um 40þús allt, en það er lang best að láta taka allar 4 í einu og afgreiða þetta bara! Gangi þér vel sæta.
Reynum nú að fara hittast!!!

27 mars, 2006 12:54  
Anonymous Nafnlaus said...

Hryllilegt og kostnaðarsamt.. GAngi þér vel ljúfust.

31 mars, 2006 10:19  
Anonymous Nafnlaus said...

Já tannlæknar en vonandi gekk þetta bara vel:)

16 apríl, 2006 14:41  

Skrifa ummæli

<< Home