þriðjudagur, maí 16, 2006

4 jaxlar farnir!

Búin að skila síðasta verkefninu mínu og er loksins komin í frí.

Ég var að koma heim úr endajaxlatökunni miklu og er nú laus við hvorki meira né minna en 4 stykki jaxla!! Munnurinn á mér er fimmfaldur og ég get varla kyngt og alls ekki talað.

Nú tek ég á móti sumri með gleði í hjarta, þrátt fyrir bólginn munn ;)

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

þú ert harðjaxl! Mig langar nú svolítið að sjá á þér smettið svona bólgið og fagurblátt.. híhíhí nei djókurinn.. þú ert ekkert með smetti!

16 maí, 2006 17:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með að vera búin að skila öllu :D njóttu þess svo í botn að vera komin í sumarfrí :-) og vonandi verður munnurinn orðinn samur við sig fljótt og örugglega

Bestu kveður
Ragga

16 maí, 2006 19:14  
Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með það, sem betur fer þarf maður bara að láta taka jaxla úr sér 1 sinni!!!

17 maí, 2006 17:35  
Anonymous Nafnlaus said...

frábært að heyra um próflokin! gaman gaman... og að sjálfsögðu hefurðu brillerað í þeim.
Jæja, eigum við ekki að stefna á að hittast? :)

19 maí, 2006 12:55  

Skrifa ummæli

<< Home