miðvikudagur, júní 06, 2007

Helsingin kaupunki

Helsingin kaupungin kotisivut. Tietoa kaupungista ja sen tapahtumista.

Já við hjónaleysin erum á leið til Finnlands með minni yndisfögru mágkonu - Árdísi! Við förum út um miðjan júlí og dveljum þar í fjóra daga á Hótel Rivoli Jardin**** sem er í hjarta Helsinki. Systkinin ætla að fara að sjá "manninn" hennar Árdísar, Mr. Hetfield, og vini hans en þeir eru saman í rokkhljómsveit sem þeir kalla Metallica. Á meðan ætla ég að þeysast um með múmínálfinum á mótorbáti...

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bara til að vara þig við þá eru Finnar algerlega klikk.. eða svona næstum því :p Ég bý með einum og svo eru nokkrir hérna í nágrenninu. Það er skemmst að segja frá að þeir eru hver öðrum furðulegri!

Kveðja frá Svalbarða

06 júní, 2007 21:10  
Blogger Little miss mohawk said...

íhíhíhíhíh jeijjjjjj ! Hlakka svo hryllilega til !

06 júní, 2007 23:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Ef þú hittir Snúð þá yrði Friðrik Heiðar í skýjunum ef þú myndir skila kveðju. Hann er á kaf í Múmín þessa dagana.
Góðar kveðjur heim.
Þuríður

07 júní, 2007 16:17  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ
ég vissi ekki að það væri lifnað við þessari síðu. Glæsilegar einkunnir hjá þér Hildur mín.
Ég var að reyna að hringja í þig áðan, en ekkert svar! :(

Inga frænka

15 júní, 2007 16:15  

Skrifa ummæli

<< Home