þriðjudagur, október 11, 2005

Hverjum getum við kennt um þetta allt saman.....

Ég er í svo mikilli kreppu þessa dagana. Mér finnst svo óþægilegt að vita af öllum þessum hræðilegu atburðum sem gerast úti í heimi alla daga. Ásamt öllu hinu sem ég veit ekki einu sinnu um!

Á meðan ég sit hér og pikka inn bloggfærslu á nýju fínu fartölvuna mína, með manninn minn í hinni tölvunni, litla engilinn minn í fína rúminu sínu, í nýju fínu, hlýju, traustu og öruggu íbúðinni minni, með rennandi heitu og köldu vatni, rafmagni og alles græers, í fína landinu Íslandi þar sem allt er svo ,,gott" er að springa úr spiki, farast úr pirringi, óþolinmæði og tímaskorti og á meðan er fólki misþyrmt, hrætt, drepið, pínt, svelt, sýnd vanvirðing og mannvonska af versta tagi sem til er.

Ég sit bara hérna og bíð eftir því að ,,einhverjir" já einhverjir geri eitthvað í málinu. Einhverjir aðrir en ég. Hverjum getum við kennt um þetta allt saman?

Ljósm. mbl.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hvað með Guð hann virðist ekki ráða við neitt? Skrattinn er með klærnar í þessu þarna úti
Ótrúlegt hvað kvikindið getur komist upp með

12 október, 2005 22:50  

Skrifa ummæli

<< Home