laugardagur, apríl 09, 2005

Keramikmálun.


Ég skellti mér á þetta ljómandi skemmtilega föndurkvöld í gærkvöldi. Við hittumst fimm saman uppi í skóla og máluðum á keramik. Ég valdi mér þennan sæta blómálf sem ég málaði nú alveg óvart í jólasveinalitum - þetta er kannski bara gamall jólasveinn sem neitaði að fara til fjalla á þrettándanum og ákvað að gerast blómálfur í staðinn? Brynjar heldur því fram að þetta sé páskaegg!

Hann mun að sjálfsögðu taka á móti gestum á veröndinni að Skipholti 50e - Reykjavík, í sumar :)

2 Comments:

Blogger �sd� said...

Til hamingju með nýja bloggútlitið
það er flott!!!!

10 apríl, 2005 12:45  
Blogger Little miss mohawk said...

Mér finnst eins og þú ættir að skrifa rosalega mikið og oft :)

10 apríl, 2005 13:35  

Skrifa ummæli

<< Home