laugardagur, apríl 09, 2005

Nýr kafli.

Hér hefst nýr kafli í bloggsögu minni. Að undanförnu hef ég ekki fundið neina þörf fyrir því að blogga og því ekki gert það.

Breytingar. Lífið er breytingum háð og breytingar geta svo sannarlega verið af hinu góða. Það er ekki alltaf auðvelt að breyta, en það getur verið áskorun og jafnvel verkefni sem við ætlum okkur að leysa. Við verðum að vera meðvituð um það verkefnin okkar ganga ekki alltaf upp, það koma misgóðir dagar, misgóðar vikur, mánuðir og ár. Við verðum að sætta okkur við það að þó að við setjum okkur markmið og áætlanir - standast þau ekki alltaf. Málið er að reyna, að reyna a.m.k. að gera sitt besta á hverjum degi.

1 Comments:

Blogger Addi said...

Til hamingju með síðuna Hildur mín. Hættu svo þessu hringli :)

09 apríl, 2005 18:57  

Skrifa ummæli

<< Home