fimmtudagur, júní 23, 2005

Sól sól skín á mig!

Af okkur er allt gott að frétta. Við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna í Skipholtinu og líður bara mjög vel. Við Brynjar erum búin að vera rosalega dugleg að fara í sund, nánast á hverjum degi og flækjast í búðum, í heimsóknum, útrétta og ýmislegt skemmtilegt. Addi er í fríi í dag og á morgun og Tómas kom til okkar í dag og ætlar að vera hjá okkur í a.m.k. 2 vikur.

Við Addi fórum á smá djamm á 17. júní, en Sonja og Snorri buðu okkur í partý á Skólavörðustíginn og þaðan var haldið niður í bæ. Brynjar gisti hjá ömmu og afa á Hofteignum.

Veðrið hefur aldeilis leikið við okkur s.l. daga og við baðað okkur í sólinni. Við höfum verið að leika okkur úti og inni, fórum öll saman í sund, fullt af ferðum í rennibrautina og komum síðan heim með pizzu. Hér að neðan má sjá nokkar myndir frá því í dag.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home